U-19 Karla

25.09.2007 16:00:19 / Reynir

Myndir úr ferðinni

eitthvað af myndum eru komnar inn. Fleiri eiga eftir að koma seinna.

http://s226.photobucket.com/albums/dd40/Reynira/u-19/?action=view&slideshow=true

Kv. Reynir

Edit: http://s226.photobucket.com/albums/dd40/Reynira/u-19/?

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 21:48:57 / Valgeir

Dagur 3

OK við erum að fara að sofa akkurat núna en við skulum segja það að við tölum ekki mikið mikið um þennan dag nema við spiluðum ömurlega. Við gerðum ekkert rétt í leiknum í dag þannig við minnumst ekkert meira á það.

 

En það stóð eitt upp úr og það var að við sýndum Ensku stúlkunum Thule auglsýsinguna "fallegust". Vá hvað þeim þótti auglýsingin vera svo móðgandi að þær stungu af.

Kv. frá Noregi Valgeir


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 08:29:04 / Valgeir

Dagur 2 í Norge

Dagur 2 byrjaði mjög fyrir okkur strákana hérna í Noregi allir fóru á sama tíma í mat kl. 8:30. Fyrsti leikurinn okkar á mótinu var ekki fyrr en kl. 15:00 þannig við fórum allir í góðan göngutúr niður í central. Sem sagt fyrsta alvöru verslunarleiðangurinn okkar í þessari ferð búinn, eiginlega allir fundu eitthvað fallegt til að kaupa. Eftir verslunarferðina fórum við allir á sjúkrahúsið til að kíkja á Andra, en Andri var þá að koma úr aðgerð þannig við máttum ekki fá að kíkja á hann og við ætlum að kíkja á hann eftir leikinn í dag.

    Við spurðum Jóa Stef og Stebba Jó  um gang leiksins og ætlum við að birta hérna á síðunni.

Jói Stef: “Leikurinn í gær var í heildina góður að mínu mati. Við forum reyndar hægt af stað og mátti greina mikið stress inni á vellinum í fyrstu hrinunni og nýttu Norðmennirnir sér það eins og sjá má á úrslitum þeirrar hrinu.”

“Ég er hinsvegar mjög ánægður með það hvernig við stóðum okkur í seinni tveimur hrinunum og mátti ekki sjá að Norðmennirnir æfa jafn mikið saman á 2 vikum og við gerum á heilu ári. Leikurinn fell okkur ekki í hag en ég er mjög ánægður með baráttuna í okkar liði, sem var til fyrirmyndar.”

Það er því ljóst að við áttum góðan fyrsta leik, sem dugði okkur ekki til. En til gamans má geta að Norska liðið æfir um 20 klukkustundir saman í hverri viku, tvisvar á dag. Hinsvegar gefst Íslenska liðinu ekki færi á að æfa  saman nema um 40 klukkustundir á ári hverju
 

Verður uppfært eitthvað meira síðar í dag og svo kemur það sem Stebbi Jó sagði um leikinn í gær.

kv. fréttaritarinn Valgeir


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 21:05:42 / Valgeir

Dagur 1

Þá er fyrsti dagurinn hjá okkur strákunum að klárast. Dagurinn er búinn að taka svolítið á fyrir okkur þótt að við gerðum ekki mikið, enda er þetta búin að vera mikil ferð fyrir okkur. Dagurinn byrjaði hjá okkur á BSÍ kl. 5 um morgun, þar sem við tökum rútu til Keflavíkur. Það gekk svolítið hægt fyrir sig að tjékka sig inn enda mikið um fólk á flugvellinum. Lítið sem ekkert var að gerast fyrr en við fórum í flug. Flugið okkar tók 4 tíma frá Íslandi til Danmerkur þar sem við milli lentum. Við fengum þar smá tíma til að borða og náðum að endurhlaða orkuna okkar. Fljótlega eftir að við vorum búin að borða var farið í flug til Noregs og þar sem við erum núna komnir til Stavanger.

Við erum á mjög flottu hóteli hérna í Stavanger og allir eru sáttir, nema kannski Andri sem er eitthvað veikur en honum til mikilar lukku er sjúkrahús hliðina hjá hótelinu eða öllur heldur er sjúkrahúsið og hótelið eru byggð upp við hvort annað. Við fengum helvíti góðan tíma til að skoða umhverfið hérna í Stavanger. Eftir að hafa gengið í nokkuð langan tíma og keypt hvíta sokka þá fórum við aftur á hótelið slökuðum aðeins á fyrir matinn sem var kl. 19:00(17:00 á íslenskum tíma). Bæði karla og kvennaliðin fengu eina æfingu í kvöld, stelpurnar áttu æfingu kl. 21 en við byrjuðum kl. 22.

 

Ekkert hefur gerst eftir æfinguna og erum við bara að fara sofa núna þannig ég ætla að kveðja í kvöld.

 

Fyrir hönda okkar í u-19 Valgeir út. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 10:30:54 / Valgeir

Aðeins nokkrar klst. í Noreg (uppfært)

Þá er að fara koma af því strákar, aðeins nokkrar klst. í það að við förum til Noregs og ég verð að segja að ég er orðinn ansi spenntur. Það á eftir að vera helvíti skemmtilegt þarna úti og svo erum við líka í fyrsta skiptið nálægt einhverju ekki eins og í Finnlandi lengst upp í sveit eða í Svíþjóð í smá bæ. Leikurinn í kvöld á eftir að vera skemmtilegur, ég kvett alla sem lesa þetta blog að koma og horfa á leikinn okkar en hann verður í íþróttahúsi KHÍ kl. 19:40.

 

Ég er enn þá að vinna með lasertagið. Sendi e-mail til þeirra fyrir tveimur dögum og er enn að bíða eftir svari. Ég get ekki hringt til þeirra í lasertag allveg strax af því það er lokað þar og opnar ekki fyrr en kl. 17:00 en ég mun vera búinn að redda þessu fyrir okkur í tæka tíð. Tvíburarnir segja að það er ekki séns að þeir séu að fara lita hárið sitt svart. Við verðum þá að finna eitthvað annað til að gera. En Hafsteinn og Kristján eru til að nota svart hársprey ef allir ætla að lita á sér hárið þannig það er kannski möguleiki að lita á sér hárið en verðum að tala betur um það.

 

    Leikurinn var góður fyrir okkur og einnig skemmtilegur. Þrótttur höfðu betur en við en það var samt mjög gaman að keppa á móti þeim. Svo er bara að bíða eftir að fara til Noregs. En hápúnturinn var náttúrulega lasertagið. Við vorum því miður allt of margir í að vera í sóló leiknum en djöfull var gaman í liða keppninni. Í liða keppninni rústaði HK strákarnir KA liðið og var Alex atkvæðamestur þeirra stráka en Valgeir(ég) var lang hæstur hjá KA strákunum, sem voru reyndar reynslu minni en HK strákarnir en það er samt engin afsökun fyrir niðurlægungunni sem þeir í KA urðu fyrir.

 

Bæti við blogið síðar í dag Valgeir út (úrdópaður8|)


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:31:14 / Valgeir

Takk fyrir mig strákar!

Takk fyrir skemmtilega strákar. Þessi færsla átti að koma upp í gær en hún eyddist. Ég vill þakka ykkur fyrir helgina skemmti mér mjög vel. Ég skemmti mér mjög vel á æfingunum, verst var hvað við gátum lítið gert saman hérna fyrir norðan. Ég er að fara tala við þau í lasertag um að fá afslátt fyrir okkur. En um er verið að ræða 3 leiki ka á móti hk, 6 á móti 6 þ.a.s.(fyrir Orra:P) en við getum einnig verið með allir á móti öllum 1 leik gæti komið út skemmtilega.

En það er að styttast í að við förum út til Noregs og ég verð að segja að þetta er án efa ein flottasta blogsíða sem ég veit um þ.a.s. hvernig hún er sett upp. Eins og allir vita þá verður keppt við Þrótt frá Reykjavík á miðvikudaginn og er sú hugmynd í loftinu að við förum strax eftir leikinn í lasertagið allir sveittir og sexy og við endum allir saman í sturtu hjá Hilmari til að þétta hópinn en meira.Hlakka til að hitta og keppa með ykkur á miðvikudaginn.

Kv. Valgeir

P.S. Einnig vill ég benda á fyrir þá sem eiga eftir að sjá pistilinn í Blaðinu frá Sævari aka Sæsa Sæta. Þar hraunar Sæsi yfir íþróttadeildblaðsins fyrir að hrauna yfir framistöðu u-17 í Finnlandi. 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 16:21:51 / Reynir

Kynningarmyndbandið

það ætti að vera komið inn undir Video vinstra megin á síðunni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 16:27:54 / Valgeir

Æfinga helgi

Æfinga helgin verður víst fyrir norðan, þannig planið um að fara í lasertagið er úr sögunni. Vonandi náum við að gera eitthvað saman til að auka liðsandan.

Endilega koma með uppástungur.

kv. Valgeir 


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 15:56:18 / Óli J

Fyrsta færslan

Ok vonandi munum við vera virkir með þessa síðu. Ég er byrjaður að hlakka til að fara til Noregs. Hugmyndin um að vera með þessa síður er mjög góð og við verum að halda henni uppi þangað til við förum út en líka þegar við verðum úti Noregi.

Mig langar bara að koma einu á framfæri og það er að ég er nr. 2 hehe annars er þetta flott hugmynd hjá Óla J. Einnig vil ég benda á að ég ætla mér að taka fartölvuna mína með til Noregs svo við getum sett upp færslur og látið inn myndir á síðuna jafn óðum og þær eru teknar.

Jæja strákar það er æfingar helgi næstu helgi og verður gaman á seinustu æfingunum fyrir mót þ.a.s. sem við æfum sem landsliðið hérna á íslandi, verður líklegast ein æfing úti í Noregi.

En ég fékk þá hugmynd eftir að vera á höfurborgarsvæðinu seinustu helgi að fara í Laser Tag. Það er rosalega góð skemmtun og allir geta tekið þátt. Gætum dregið í lið 6-6. Þetta er alla vega hugmynd sem liggur á borðinu getum nátturulega gert eitthvað annað, tek það líka fram að ég fékk þessa hugmynd eftir að hafa verið í lasertag með Reyni, Ólunum og nokkrum öðrum. En Laser Tag snýst rosalega mikið um samvinnu þegar maður er að keppa í liðum þannig þetta er góð æfing fyrir okkur.

 

Kv. Valgeir


» 2 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Gamalt blogg